Jose Mourinho stjóri Fenerbache er klár í slaginn fyrir leikinn gegn sínum gömlu vinum í Manchester United á morgun í Evrópudeildinni.
Mourinho tók við United árið 2016 en var rekinn tveimur og hálfu ári síðar eftir ágætt starf.
„Fólk heldur að ég sé að blekkja en United í ár hefur staðið sig betur en úrslitin segja til um. Við höfum horft á allt, þeir munu fyrr en síðar ná árangri,“ segir Mourinho.
„Vonandi sem fyrst og áður en ég mæti aftur í ensku úrvalsdeildina.“
Mourinho vonast til þess að vinna ensku deildina með United ef Manchester City verður dæmt fyrir brot sín sem félagið er sakað um.
„Manchester United á möguleika á að vinna deildina fyrir 2017/18 tímabilið ef City verður refsað. Ef það gerist þá fæ ég vonandi medalíu og að félagið borgar mér bónusinn minn,“ sagði Mourinho léttur.
🔴🇵🇹 José Mourinho: “I think Man Utd still have a chance to win that league [2017/18 season] if they punish Manchester City”.
“In that case, I hope they give me my medal and pay me the bonus!”. pic.twitter.com/GFZYmTfRnI
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) October 23, 2024