Arsenal og Barcelona eru bæði sögð hafa haft samband við Aston Villa vegna Jhon Duran framherja liðsins. AS í Kólumbíu segir frá þessu.
Samkvæmt fréttinni myndi Aston Villa skoða það að selja Duran fyrir 75 milljónir punda.
Duran gerði nýjan samning við Villa á dögunum og er bundinn félaginu til ársins 2030.
Þessi tvítugi framherji hefur skorað sjö mörk í öllum keppnum og skoraði meðal annars í sigri á Bologna í Meistaradeildini í gær.
Duran hefur hins vegar bara byrjað tvo leiki á þessu tímabili og Villa treystir frekar á Ollie Watkins.
West Ham og Chelsea höfðu bæði áhuga á að kaupa Duran í sumar og nú eru stærri lið mætt við borðið.