Chelsea er farið í hart við Josh Acheampong 18 ára leikmann félagsins og fær hann ekki að spila aftur fyrir félagið.
Acheampong fær hins vegar að spila fyrir félagið ef hann skrifar undir nýjan samning.
Acheampong hefur ekki viljað gera nýjan samning við Chelsea en hann er mikið efni þessi ungi varnarmaður.
Acheampong er hluti af U20 ára landsliði Englands en Chelsea hótar honum núna.
Nokkur lið hafa sýnt Acheampong áhuga og hefur hann því ekki viljað skrifa undir nýjan samning.