ABC News greinir frá þessu.
Lögreglan í Halifax í Nova Scotia fer með rannsókn málsins en ekki liggur fyrir hvernig konan endaði látin inni í ofninum. Þó er talið að um slys hafi verið að ræða.
Ofninn sem um ræðir er stór og getur starfsfólk gengið inn í hann með einföldum hætti. Segir lögregla að rannsókn málsins sé „flókin“ og muni taka „talsverðan“ tíma.
Konan flutti til Kanada frá Indlandi ásamt móður sinni fyrir nokkrum árum og hafði hún starfað í versluninni um skamma hríð þegar hún fannst látin.