Arsenal þarf að gera betur manni færri að sögn Gary Neville sem starfar í dag sem sparkspekingur Sky Sports.
Arsenal spilaði við Bournemouth um helgina og fékk rautt spjald á 38. mínútu er William Saliba var sendur í sturtu.
Bournemouth vann leikinn að lokum 2-0 en að mati Neville er það óásættanlegt af hálfu Arsenal sem vill berjast um titilinn.
,,Ef þú þarft að spila á tíu leikmönnum þá þarftu samt að vinna þína leiki. Roy Keane sagði þetta fyrir nokkrum vikum,“ sagði Neville.
,,Eftir leikinn gegn Manchester City þá gastu vorkennt þeim aðeins en gegn Brighton vildi Roy sjá þá vinna með tíu menn.“
,,Ég trúi því að þeir ættu að vinna Bournemouth í stöðunni 0-0 eftir að hafa misst mann af velli. Þeir þurfa að vinna þennan leik, þeir mega ekki tapa þessu.“