Bonnie tók allt upp og seldi efnið á OnlyFans. Hún hefur endurtekið leikinn, í Ástralíu og nú síðast í september í Nottingham Trent, Bretlandi, á meðan á nýnemaviku háskólanna stóð. Hún svaf hjá 158 ungum karlmönnum á tveimur vikum. Það var löng röð af karlmönnum fyrir utan hótelherbergi hennar, sumir biðu í átta klukkutíma.
Bonnie var gestur í hlaðvarpinu The Reality Check og svaraði öllum spurningum þáttastjórnendanna. Hún sagði aðalmarkmið hennar alltaf það sama: Veita karlmönnunum ánægju.
Hún rukkar ekki mennina en tekur upp fund þeirra og selur efnið á OnlyFans.
Bonnie sagði mennina ráða því hvort andlit þeirra sé hulið í myndböndunum eða ekki, og þó hún óski aðallega eftir ungum karlmönnum þá eigi feður og kennarar það til að rata inn í herbergi hennar.
Það eru einhverjar reglur, eins og að mennirnir mega ekki mæta undir áhrifum áfengis.
Bonnie sagði allt ganga nokkuð smurt fyrir sig. Versta upplifunin hafi verið þegar síma hennar var stolið eftir hópkynlíf. Hún hafði sofið hjá 23 manns í einu og sagði að herbergið hafi verið á hvolfi, eins og við væri að búast eftir svona stórt hópkynlíf, og hún hafi haldið að sími hennar væri undir einhverjum smokkapakkanum. En einhver stal símanum og reyndi að kúga fé út úr henni. Hann hótaði að birta öll myndböndin á símanum ef hann fengi ekki peninginn. Henni tókst að fá símann aftur og réði öryggisvörð næsta dag.
Aðspurð hvort útlit hafi engin áhrif, ef þeir eru gamlir eða óaðlaðandi, svarar Bonnie neitandi. „Ég vil bara veita þeim ánægju, það er það sem skiptir mig máli.“
Á einum af þessu viðburðarríku dögum bauð Bonnie karlmönnum að koma og hitta sig í tvær mínútur. Hún greip til þeirra ráða þegar hún áttaði sig á að nýnemavikunni væri að ljúka og henni hafði ekki tekist að hitta jafn marga stráka og hún vildi.
Áður en þeir fengu að koma inn í herbergi með henni spurði hún þá spurningu, alltaf ein spurning og sama spurningin fyrir alla.
„Spurningin mín til þeirra var: „Hvort viltu eyða tveimur mínútum með mér einn eða tvöfalda tímann og gefa næstu manneskju hann,““ segir hún.
„Því ég hef svo oft fengið að heyra: „Ef ég fengi tvær mínútur með þér myndi ég gjörsamlega eyðileggja þig, þetta yrðu bestu tvær mínútur ævi þinnar.“ Þannig ég vildi gera smá tilraun, heyra hvað þeir segjast vilja gera við mig á tveimur mínútum og sjá síðan hvað þeir enda með að gera. Það var mjög gaman, sumir þurftu ekki einu sinni tvær mínútur.“
Bonnie, sem sagðist hafa hitt þrjátíu manns þennan dag, birti viðtal við nokkra þeirra á Instagram.
Prófaðu að endurhlaða síðuna ef þú sérð ekki færsluna hér að neðan.
View this post on Instagram
View this post on Instagram
Eins og fyrr segir hafa karlmenn beðið lengi í röð eftir tækifæri til að stunda kynlíf með Bonnie.
Hún og OnlyFans-stjarnan Lillian Phillips tóku saman á móti áhugasömum eitt kvöldið i Notthingham og birtu myndband á Instagram. Þær sýndu röðina af æstum karlmönnum, þær pössuðu sig að sýna aðeins fætur þeirra.
View this post on Instagram