Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu liggur nú undir feldi og íhugar að taka sæti á lista hjá Viðreisn.
RÚV greinir frá þessu.
Að sögn Gríms mun hann taka ákvörðun síðar í dag. Hann hafi rætt málið við yfirmenn sína hjá lögreglunni.
Um er að ræða hugsanlegt framboð í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu. Mikil ásókn er að vera ofarlega á lista hjá Viðreisn í Reykjavík. Auk þingmannanna Hönnu Katrínar Friðriksson og Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur vill Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóri, komast að sem og Diljá Ámundadóttir Zoega fyrrverandi borgarfulltrúi.