Greint var frá því í kvöldfréttum RÚV í gær að Jakob, sem var oddviti flokksins í Norðausturkjördæmi, yrði ekki áfram oddviti. Frekari breytingar eru fyrirhugaðar í Flokki fólksins því Tómas Tómasson, oft kenndur við Búlluna, verður ekki heldur oddviti í Reykjavík og mun Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, taka sæti hans.
Bubbi er ekki sáttur við það að missa Jakob Frímann eins og hann lýsir á Facebook-síðu sinni.
„Jakob Frímann Magnússon Hefur verið einn ötulasti talsmaður íslenskrar tónlistar sem og íslenskra tónlistarmanna hér á landi. Bakvið tjöldin hefur enginn þingmaður í gegnum árin unnið jafn kröftuglega í þágu okkar flytjanda og hann. Hann hefur unnið gott starf fyrir Flokk fólksins undanfarin ár. Að Inga Sæland hendi honum út er óskiljanlegt og tel ég það mikil mistök.“
Fleiri eru á því að Inga Sæland sé að gera mistök. Sveinn Andri Sveinsson lögmaður er í þeim hópi.
„Alltaf sérstakt að verða vitni að kjánalegum mistökum í pólitík. Það er ljóst að með þessu er öruggt að Flokkur fólksins nær ekki manni á þing fyrir Norðaustur. Jakob Frímann er í senn öflugur og óhefðbundinn stjórnmálamaður.”