NBC News og Deadline greina meðal annars frá þessu en talsmenn hans hafa ekki viljað staðfesta tíðindin.
Um er að ræða svokallað kyrningahvítblæði og hefur hann hlotið meðferð við sjúkdómnum í fangelsinu á Rikers-eyju þar sem hann afplánar dóm fyrir nauðgun.
Weinstein hefur glímt við heilsubrest á síðustu árum, þar á meðal sykursýki, alvarlega Covid-19 sýkingu og lungnabólgu. Þá gekkst hann undir hjartaaðgerð í síðasta mánuði.
Weinstein var dæmdur í 23 ára fangelsi í New York árið 2020 fyrir nauðgun en sá dómur var ógiltur. Áttu ný réttarhöld í því máli að hefjast á næstu vikum en líkur eru á því að þau muni frestast fram á nýtt ár.