Stórstjarnan Neymar sneri aftur á völlinn í gær er Al Hilal spilaði við lið Al Ain í Meistaradeildinni í Asíu.
Neymar hefur verið frá um ár vegna meiðsla en hann sleit krossband á síðasta ári.
Brasilíumaðurinn er loksins að koma aftur eftir þessi erfiðu meiðsli og kom við sögu í svakalegri viðureign.
Al Hilal vann leikinn með fimm mörkum gegn fjórum en staðan var 3-5 þegar Neymar kom við sögu.
Al Hilal er á toppi deildarinnar í Meistaradeildinni með níu stig eftir þrjá leiki.