Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, mun verða oddviti Flokks fólksins í öðru Reykjavíkurkjördæminu. Tómas Tómasson er á leiðinni af þingi.
Þetta kemur fram hjá Vísi síðdegis í dag.
Ragnar segir að framboðið hafi ekki áhrif á störf hans hjá VR. Hann hafi ekki íhugað að fara í leyfi.
Tómas, sem er 75 ára gamall, hafði fyrir skemmstu sagst vilja vera áfram oddviti fyrir flokkinn og ætti sér draum að verða ráðherra. Það mun ekki raungerast.
„Guðmundur Ingi Kristinsson þingflokksformaður Flokks fólksins hringdi í mig í gær kl 17.47 til að tilkynna mér að ég yrði ekki á lista Flokks fólksins í næstu Alþingiskosningum, en ég var í oddvitasæti 2021 og var kjördæmakjörinn. Þetta kom mér svoldið á óvart,“ segir Tómas í yfirlýsingu. „Ég skil leikreglurnar. Það er margt gott fólk í boði og getur verið gott að endurnýja.“