HK vann ótrúlegan sigur í Bestu deild karla í kvöld er liðið mætti Fram á heimavelli eða í Kórnum.
Útlit var fyrir að þessum leik myndi enda með 1-1 jafntefli en HK lenti undir í fyrri hálfleik en var ekki lengi að svara fyrir sig.
Staðan var jöfn þar til á 98. mínútu er Þorsteinn Aron Antonsson kom boltanum í netið eftir aukaspyrnu.
Ótrúleg dramatík í Kórnum og eru stigin mikilvæg fyrir HK sem er nú búið að jafna Vestra að stigum fyrir lokaumferðina.
Ansi athyglisvert atvik átti sér stað eftir leik þegar Rúnar Kristinsson virtist ætla að þakka Ómari Inga Guðmundssyni fyrir leikinn.
Rúnar dró hendina til baka er Ómar mætti á svæðið en það var hiti í mönnum eftir lokaflautið.
Þetta má sjá hér.
Hiti eftir leik HK og Fram😳
Rúnar Kristins henti í fake handshake👀 #islenskurfotbolti pic.twitter.com/bk5kaGORyG— Íslenskur Fótbolti (@islenskurf) October 20, 2024