Tottenham gekk frá West Ham í síðari hálfleik í fyrsta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Mohammed Kudus lét reka sig af velli hjá West Ham.
West Ham komst yfir í leiknum en það var Kudus sem gerði það. Dejan Kulusevski jafnaði leikinn fyrir heimamenn áður en fyrri hálfleikur var á enda.
West Ham missti hausinn í síðari hálfleik en Son Heung-min og Yves Bissouma skoruðu og þá var eitt skráð sem sjálfsmark á Alphonse Areola.
Það var svo undir restina á leiknum sem Kudus ákvað að slá tvo leikmenn í andlitið og var réttilega rekinn af velli.
Nú er talið að Kudus sé mögulega á leið í sex leikja bann en hann sást einnig sparka í Micky van de ven, varnarmann Arsenal.
Stórfurðuleg hegðun hjá Kudus en hann fékk að líta spjaldið á 86. mínútu.