Ekki liggur nákvæmlega fyrir hvað gerðist en þó er vitað að Payne hrapaði til bana af svölum hótelherbergis síns í borginni, en herbergið sem um ræðir var á þriðju hæð.
Breska blaðið Daily Mail hefur nú varpað ljósi á neyðarlínusímtal sem starfsmaður hótelsins, Casa Sur Hotel, átti skömmu áður en tilkynnt var um atvikið.
Payne hafði hagað sér einkennilega áður en hann lést, verið æstur og óútreiknanlegur, og var honum fylgt af starfsfólki hótelsins að herbergi sínu áður en hann féll.
Starfsmaður á hótelinu hringdi tvö símtöl í neyðarlínuna, en í því fyrsta sagði hann að ákveðinn gestur, Liam Payne, væri stjórnlaus vegna neyslu fíkniefna og væri að rústa öllu í herberginu sínu. „Það þarf einhver að koma,“ sagði starfsmaðurinn.
Hann hringdi svo aftur eftir að sambandið slitnaði þar sem hann lýsti því að líf viðkomandi væri hugsanlega í hættu. „Það eru svalir á herberginu og við erum hrædd um að hann muni gera eitthvað.“
Í umfjöllun Daily Mail kemur fram að Payne hafi rústað fartölvunni sinni í lobbýinu og var honum fylgt af starfsfólki aftur inn í herbergi sitt. Ekki löngu síðar var hringt aftur eftir aðstoð lögreglu þar sem beðið var um sjúkrabíl.
Hafði starfsfólk heyrt talsverðan hávaða í garði við hótelið áður en lík Liam fannst þar skömmu eftir klukkan 17 að staðartíma, eða 20 að íslenskum tíma.
Lögregla er með andlát tónlistarmannsins til rannsóknar.
Liam Payne sló í gegn í þáttunum X-Factor árið 2010 þar sem hann kom fram í hljómsveitinni One Direction ásamt félögum sínum Zayn Malik, Louis Tomlinson, Niall Horan og Harry Styles. Hann lætur eftir sig son sem hann eignaðist með tónlistarkonunni Cheryl Ann Tweedy árið 2017.