fbpx
Miðvikudagur 16.október 2024
Pressan

Frægur rithöfundur segir að saklaus maður verði tekinn af lífi á morgun

Pressan
Miðvikudaginn 16. október 2024 13:30

Robert og dóttir hans Nikki skömmu áður en hún lést.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flest bendir til þess að Bandaríkjamaðurinn Robert Roberson verði tekinn af lífi annað kvöld. Bandaríski glæpasagnahöfundurinn og lögfræðingurinn John Grisham hefur kallað eftir því að aftökunni verði aflýst enda sé Robert saklaus maður.

Það var þann 31. janúar 2002 að Robert mætti með dóttur sína á sjúkrahús í bænum Palestine í Texas. Stúlkan var meðvitundarlaus, blá og augljóslega í mikilli lífshættu.

Læknar hringdu nær umsvifalaust á lögreglu og sögðust fullvissir um að stúlkan væri með það sem kallast Shaken baby syndrome. Nikki lést á sjúkrahúsinu daginn eftir og töldu læknar fullvíst að hún hefði verið hrist til dauða – og það áður en krufning hafði farið fram.

„Það voru bara þessi þrjú orð: Shaken baby syndrome. Án þeirra væri hann frjáls maður í dag“

Shaken baby syndrome er umdeilt hugtak í læknavísindum og hafa dómstólar, til dæmis í New Jersey í Bandaríkjunum, afskrifað hugtakið sem „ruslvísindi“ í ákveðnum tilfellum. Það kom þó ekki í veg fyrir að Robert var dæmdur til dauða í febrúar 2003.

Robert hefur staðfastlega haldið fram sakleysi sínu í málinu og aldrei viðurkennt að hafa beitt dóttur sína ofbeldi. Margir virðast vera sammála honum og í þeim hópi er til dæmis lögfræðingurinn og rithöfundurinn John Grisham. Læknar, lögfræðingar og vísindamenn eru einnig í þessum hópi.

Í pistli sem Grisham skrifaði í Washington Post þar sem hann segir að lungnabólga hafi að líkindum dregið stúlkuna til dauða. Rannsóknarlögreglumaðurinn sem rannsakaði málið á sínum tíma er einnig þeirrar skoðunar að sleppa ætti Robert úr haldi sem og fjöldi þingmanna í Texas. „En þeir sem hafa valdið til að stöðva aftökuna virðast ekki vera að fylgjast með,“ segir Grisham í grein sinni.

Á þessum tímapunkti geta aðeins ríkisstjórinn Greg Abbott, áfrýjunardómstóll eða Hæstiréttur Bandaríkjanna stöðvað aftökuna. Ef það gerist ekki verður Robert að óbreyttu tekinn af lífi annað kvöld. „Erum við tilbúin að horfa á aftöku á hugsanlega saklausum manni í stað þess að kafa dýpra í mál hans,“ spyr Grisham.

John Grisham. Mynd/Getty
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Skotbardagi rétt við Kreml

Skotbardagi rétt við Kreml
Pressan
Í gær

Brá mikið þegar hún sá hvað var í fatapakkanum

Brá mikið þegar hún sá hvað var í fatapakkanum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kynlíf og líkamsgötun fóru illa í óperugesti – Sumir þurftu læknisaðstoð

Kynlíf og líkamsgötun fóru illa í óperugesti – Sumir þurftu læknisaðstoð
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ég er tilbúin að gera hvað sem er fyrir peninga, óháð því hversu ógeðslegt verkið er“

„Ég er tilbúin að gera hvað sem er fyrir peninga, óháð því hversu ógeðslegt verkið er“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Dularfullt hvítt efni á 3.600 ára múmíum kom vísindamönnum á óvart

Dularfullt hvítt efni á 3.600 ára múmíum kom vísindamönnum á óvart
Pressan
Fyrir 3 dögum

Undarlegur „sebra steinn“ á Mars er ólíkur öllu öðru sem sést hefur á plánetunni

Undarlegur „sebra steinn“ á Mars er ólíkur öllu öðru sem sést hefur á plánetunni