Sky News skýrir frá þessu og segir að hluta dýragarðsins hafi verið lokað og sótthreinsun hafi farið fram. Sérfræðingar hafi verið kallaðir á vettvang til að kryfja dýrin og gera eiturefnarannsókn á þeim.
Aparnir voru af ýmsum tegundum.
Vel er fylgst með þeim öpum sem eftir eru sem og öðrum dýrum en ástand þeirra er sagt eðlilegt.
Dauði apanna hefur vakið upp áhyggjur af að hugsanlega sé um sjúkdóm, sem getur borist á milli dýra og manna, að ræða. Meðal slíkra sjúkdóma er apabóla.