fbpx
Miðvikudagur 16.október 2024
Pressan

Fannst á lífi eftir 67 daga á sjó: Bróðir hans og litli frændi látnir við hlið hans

Pressan
Þriðjudaginn 15. október 2024 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það þykir ganga kraftaverki næst að 45 ára karlmaður, Mikhail Pichugin, hafi komist lífs af eftir að hafa verið í 67 daga um borð í björgunarbáti í Okotskhafi úti fyrir austurströnd Rússlands.

Það var þann 9. ágúst að Mikhail hélt af stað ásamt bróður sínum, Sergey Pichugin, 49 ára, og 15 ára gömlum frænda sínum, Ilya. Ætluðu þremenningarnir að fara í hvalaskoðun en ekki vildi betur til en svo að bátur þeirra varð vélarvana og rak hann sífellt lengra á haf út.

Það voru sjómenn sem komu auga á björgunarbát sem Mikhail hafði komið sér í og hafa fjölmiðlar í Rússlandi birt stutt myndskeið sem sýnir frá björguninni. Um borð í bátnum voru Sergey og Ilya en þeir voru báðir látnir. Óvíst er hvenær þeir létust.

Sérfræðingar eru á einu máli um að það gangi kraftaverki næst að Mikhail hafi fundist á lífi. Á Okotskhafi er allra veðra von og svalt á þessum árstíma.

Þremenningarnir eru sagðir hafa verið á leið frá Shantar-eyjum til bæjarins Okha sem er á Sakhalin-eyju þegar hörmungarnar dundu yfir. Báturinn þeirra, Baykat 470M, varð vélarvana og er talið að hann hafi rekið rúma þúsund kílómetra á þessum tveimur mánuðum.

Ferðin átti aðeins að taka nokkra daga og voru þremenningarnir því með mat, hlý föt og um 20 lítra af fersku vatni með sér. Leitarhópar leituðu að þremenningunum þegar þeir skiluðu sér ekki í ágústmánuði en leit var blásin af þar sem afar ólíklegt var talið að þeir fyndust á lífi.

Voru það sjómenn um borð í bátnum Angel sem komu auga á björgunarbátinn um tuttugu kílómetrum fyrir utan þorpið UstKhairyuzovo sem er á Kamsjatka-skaga. Mikhail var eðli málsins samkvæmt mjög máttfarinn og var honum komið umsvifalaust undir læknishendur. Í fréttum rússneskra fjölmiðla kemur fram að Mikhail hafi lést um 50 kíló.

Lögregla mun vera með málið til rannsóknar og beinist hún meðal annars að því að báturinn sem þremenningarnir fóru á hafi ekki haft tilskilin leyfi til að fara jafn langt á haf út og raun bar vitni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Kántrístjarna gerði hlé á tónleikum meðan eiginkonan fæddi son – „Klikkaðasta kvöld lífs míns“

Kántrístjarna gerði hlé á tónleikum meðan eiginkonan fæddi son – „Klikkaðasta kvöld lífs míns“
Pressan
Í gær

Óttast að fá Kínverja sem nágranna við mikilvæga bandaríska herstöð

Óttast að fá Kínverja sem nágranna við mikilvæga bandaríska herstöð
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hvað eru margar vetrarbrautir í alheiminum?

Hvað eru margar vetrarbrautir í alheiminum?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Tveggja landa þorp í hjarta Evrópu

Tveggja landa þorp í hjarta Evrópu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hversu lengi getur maður lifað við að borða sjálfan sig?

Hversu lengi getur maður lifað við að borða sjálfan sig?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Óvænt uppgötvun – Vita nú hvenær feldur ísbjarna varð hvítur

Óvænt uppgötvun – Vita nú hvenær feldur ísbjarna varð hvítur
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fullorðinn maður fékk mikið hrós fyrir „snilldarlega hefnd“ gegn níu ára dreng

Fullorðinn maður fékk mikið hrós fyrir „snilldarlega hefnd“ gegn níu ára dreng
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hundur reif handlegginn af eiganda sínum – Lögreglustjórinn aldrei séð annað eins

Hundur reif handlegginn af eiganda sínum – Lögreglustjórinn aldrei séð annað eins