Metro segir að dansarinn hafi stundað æfingar í eina og hálfa klukkustund í einu, fimm sinnum í viku. Á þessum æfingum snerist hann á höfðinu í allt að sjö mínútur. Þetta olli þrýstingi á höfuðið og varð til þess að keilulaga bunga myndaðist. Hann hafði stundað breikdans í 19 ár þegar hann fór í aðgerðina.
Bungan myndaðist hægt og rólega og fór stækkandi eftir því sem árin liðu og varð svo viðkvæm að dansaranum fannst hann ekki getað farið úr húsi nema vera með hatt til að hylja hana.
Hann leitaði sér að lokum læknisaðstoðar og var sendur í ýmsar rannsóknir til að hægt væri að útiloka að um krabbamein eða aðra sjúkdóma væri að ræða. Hann var að lokum greindur með „höfuðsnúnings holu“.
Skýrt er frá málinu í vísindaritinu BMJ Case Reports. Í greininni eru breikdansarar hvattir til að forðast að láta sig snúast á höfðinu, að minnsta kosti ef þeir vilja sleppa við að fá „breikdans bungu“ á höfuðið.
Aðeins eitt annað svona tilfelli hefur verið tilkynnt til lækna fram að þessu.