fbpx
Mánudagur 14.október 2024
Eyjan

Segir Bjarna ekki stjórna ferðinni sem formaður smáflokks – „Lyktar af óstöðugleika og óðagoti, sem er fyrst og fremst prívat vandamál Bjarna“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 14. október 2024 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Mér hefur þótt aðrir flokkar vera heldur fljótir til að taka handritið sem Bjarni hefur skrifað, líkt gefnum hlut, og séu að stilla sér upp í þau hlutverk sem Bjarni hefur valið þeim,“ segir Gauti B. Eggertsson, prófessor í hagfræði. Að hans mati eru aðrir formenn ekki í þeirri úlfakreppu sem Bjarni er í.

„Mér hefur þótt aðrir flokkar vera heldur fljótir til að taka handritið sem Bjarni hefur skrifað, líkt gefnum hlut, og séu að stilla sér upp í þau hlutverk sem Bjarni hefur valið þeim. Staðreyndin er sú að þeir eru fullfærir um að skrifa það handrit sem þeim best hentar. Þetta kemur út eins og Bjarni sé ´sterki maðurinn´ í íslenskri pólitík, sem öllu ráði, ef þeir standa og sitja eins og hann segir þeim. Það er ekki þeim í hag.

Mér sýnist blasa við af hverju Bjarni stendur svona að málum: Hann vill knýja fram kosningar strax, án tafar og án nokkurs konar opins prófskjörs í flokknum sínum eða möguleika neins á að ógna honum í formannsstóli Sjálfstæðisflokksins. Það verður að teljast líklegt að það yrði gert ef ekki væri rokið í kosningar strax, því Bjarni hefur aldrei staðið veikar. Flokkurinn mælist lægri en Píratar í skoðanakönnunum. En þótt þetta sé Bjarna í hag, veltir maður því fyrir sér hvort þetta sé í hag annarra flokka?“

segir Gauti B. Eggertsson, prófessor í hagfræði við Brown-háskóla í Providence í Rhode Island í Bandaríkjunum og bróðir Dags, fyrrum borgarstjóra.
Bendir hann á að nú sé í fyrsta sinn sú staða uppi á Íslandi að Sjálfstæðisflokkurinn hefur sprengt ríkisstjórn, …„sem sýnir þá eðlisbreytingu sem orðið hefur á flokknum sem hefur löngum talið kjósendum trú um að hann sé kjölfesta stöðugleika í íslensku stjórnarfari. Atburðarásin lyktar af óstöðugleika og óðagoti.“

Spyr hvort Halla muni neita Bjarna

Gauti bendir á að Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hefur ekki vald til að rjúfa þing, það hafi Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti, einnig bent á. „Það kom í ljós þegar Sigmundur Davíð reyndi að búa til svipað leikrit sem hentaði honum vel persónulega til að tryggja eigin stöðu pólitískt en fáum öðrum. Ólafur Ragnar sagði einfaldlega nei.
Það er áhugaverð spurning hvort sá forseti sem nú hefur verið valinn hafi pólitíska vigt til þess að neita að dansa eftir flautuleik Bjarna.“

Segir meirihluta á þingi ekki þurfa á Sjálfstæðisflokki að halda

Gauti bendir á að vald til þingrofs liggi hjá forseta, og þing skuli aðeins rofið ef og þegar ekki er hægt að mynda starfhæfa ríkisstjórn.

„Aðrir formenn eru ekki í þeirri úlfakreppu sem Bjarni er, heldur sitja öryggir í sínum stólum. Þeim liggur ekkert á. Ef þeir koma sér saman um bráðabyrgðastjórn, með eða án Sjálfstæðisflokksins, er þeim í lófa lagið að rjúfa þing með þeim hætti sem þeim finnst sér sjálfum best henta og er í bestum takti við lýðræðislegar kosningar og hefðir.

Það kann til dæmis að koma þeim ágætlega í hag að horfa upp á borgarastríð í Sjálfstæðisflokknum, þar sem formaðurinn kynni að fá herfilega útreið í prófkjöri, áður en gengið er að kjörborði.
Ef ég man rétt, þá er meirihluti á þingi sem þarf hvorki á Sjálfstæðis eða Miðflokki að halda.“

Ráðleggur öðrum flokkum að tala saman

Gauti ráðleggur öðrum stjórnmálaleiðtogum að anda rólega, spjalla saman í rólegu heitunum, og láta ekki líkt og Bjarni ráði ferðinni, því hann geri það ekki.

„Þeir eiga að ræða um þetta sem hugmynd Bjarna, ekki þingrof, því þá eru þeir að gefa honum vald sem hann hefur ekki.
Þeir eiga að velta fyrir sér hvort þeir séu mati hans sammála um að rjúfa þing með þessum hætti eða fara aðrar leiðir. Það má mynda starfstjórn eða minnihlutastjórn. Ekki tala líkt og Bjarni stjórni förinni, því það gerir hann ekki sem formaður smáflokks.“

Segir Gauti formenn annarra stjórnarflokka hafa öll kortin á sínum höndum hvað þingrof varðar og eiga ekki að láta skammtímahagsmuni formanns Sjálfstæðisflokksins ráða því því hvernig haga skuli Alþingiskosningum á Íslandi.

„Kannski komast þeir að þeirri niðurstöðu að best sé að fara þá leið að hafa kosningar á svipuðum tíma sem Bjarni leggur til. Kannski ekki. En þá eiga þeir að gera það á eigin forsendum eftir að ræða málið hver við annan. Þeir þurfa ekkert leyfi frá Bjarna til þess. Mér finnst alger óþarfi að vera að gefa honum eitthvað vald sem er ekki í hans höndum.

Fólk ætti að anda rólega og velta því fyrir sér hvað er landi og þjóð fyrir bestu og hvernig sé eðlilegt að standa að lýðræðislegum kosningum á Íslandi. Það hefur verið gert margoft áður, við miklu verri og flóknari ástæður, áður en að rokið er í þær í einhverju panikki. Eins og ég sagði, þetta lyktar of óstöðugleika og óðagoti, sem er fyrst og fremst prívat vandamál Bjarna og hans þröngu pólitísku stöðu innan eigin flokks.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Orðið á götunni: Barátta bak við luktar dyr – sér sig sem bjargvætti Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Barátta bak við luktar dyr – sér sig sem bjargvætti Sjálfstæðisflokksins
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Þórhildur Sunna: Aðdáunarvert innra starf hjá Sjálfstæðisflokknum

Þórhildur Sunna: Aðdáunarvert innra starf hjá Sjálfstæðisflokknum
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Viðbrögð Sjálfstæðisflokks skýr skilaboð til Vinstri Grænna – „Munu ekki sitja þegjandi undir öllum yfirlýsingunum“

Viðbrögð Sjálfstæðisflokks skýr skilaboð til Vinstri Grænna – „Munu ekki sitja þegjandi undir öllum yfirlýsingunum“
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Þórhildur Sunna: Til hvers að kjósa í vor – af hverju kjósum við ekki strax?

Þórhildur Sunna: Til hvers að kjósa í vor – af hverju kjósum við ekki strax?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Jón Gunnarsson: Býð mig fram í næstu þingkosningum – flokksmenn velja listann

Jón Gunnarsson: Býð mig fram í næstu þingkosningum – flokksmenn velja listann
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Kemur Áslaugu Örnu til varnar eftir „níðskrif“ – Segir listamann upphefja sjálfan sig með „klemmdar rasskinnar af reiði“

Kemur Áslaugu Örnu til varnar eftir „níðskrif“ – Segir listamann upphefja sjálfan sig með „klemmdar rasskinnar af reiði“