Greint er frá andláti hans í Morgunblaðinu í dag.
Í umfjölluninni kemur fram að Frank hafi látist á sjúkrahúsinu í Avignon í Frakklandi þann 8. október síðastliðinn af völdum hastarlegra ofnæmisviðbragða og hjartaáfalls. Var hann staddur í fríi í Suður-Frakklandi.
Frank, sem flutti til Íslands frá Bandaríkjunum árið 1991, lætur eftir sig þrjár dætur.
Hann kenndi meðal annars ensku við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum og þýsku við Menntaskóla Borgarfjarðar. Þá stofnaði hann og rak veitingastaðinn Vegamót 1997 til 2000 og Reykjavík Bagel Company árið 2003 til 2005.
Hann starfaði einnig sem leiðsögumaður og skrifaði meðal annars pistla fyrir Iceland Review. Í umfjöllun Morgunblaðsins kemur fram að hann hafi verið mikill tungumálamaður og talaði hann, auk ensku sem var móðurmál hans, þýsku, frönsku, íslensku, flæmsku auk þess að leggja stund á spænsku undanfarin ár. Þá lærði hann köfun, var með einkaflugmannspróf og lék á fjölmörg hljóðfæri.
Útför Franks fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík næstkomandi föstudag.