fbpx
Fimmtudagur 10.október 2024
Fókus

Eva fékk áfall þegar eiginmaður hennar bað skyndilega um skilnað í fyrra – „Ég er ennþá í storminum“ 

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Fimmtudaginn 10. október 2024 11:28

Eva Gunnarsdóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eva Gunnarsdóttir, sálfræðingur og núvitundarkennari, segir að það hafi verið mikið áfall þegar eiginmaður hennar tilkynnti henni óvænt að hann vildi skilnað. Hún segist enn vera að jafna sig og hafi leitað til hugvíkkandi efna til að vinna úr reynslunni og öðrum áföllum.

Eva er gestur í nýjasta þætti af hlaðvarpinu Fullorðins á Brotkast.

„Ég var á heilsustofnun í Hveragerði [í fyrra] þegar maðurinn minn kemur þangað og tilkynnir þennan skilnað. Þannig ég verð svolítið eftir á Íslandi. Ég átti eiginlega ekki mikið val,“ segir Eva.

Eva fékk ristilkrabbamein þegar hún var fertug og fór í gegnum meðferð á Royal Free Hospital. Auk þess hefur hún einnig glímt við síþreytu og langvinna verki og hefur þess vegna dvalið reglulega á heilsustofnunum.

„Ég hef svo mikið verið að vinna með heilsuna, ekki bara krabbamein heldur hef ég líka verið að fást við síþreytu og langvinna verki, síðan kulnun fyrir nokkrum árum,“ segir hún.

Eva segir að það hafi verið hennar stærsta áfall í lífinu þegar eiginmaður hennar tilkynnti henni óvænt að hann vildi skilnað. Eva bjó lengi í Bretlandi með eiginmanni og dætrum, en varð eftir á Íslandi.

„Svo fór hann aftur út með dætur okkar, ég varð eftir hér,“ segir Eva. Dætur Evu eru fimmtán og tuttugu ára gamlar.

„Þetta er algjör kúvending. Ég þarf næstum því að klípa mig í handlegginn þegar ég vakna á morgnanna, hvar er ég…“ segir hún.

Aðspurð hvort Eva sé komin á góðan stað segir Eva: „Ég er ennþá í storminum.“

Hugvíkkandi efni

Eva hefur gengið í gegnum mikið á ævinni og segist vera byrjuð að nota hugvíkkandi efni til að takast á við áföll. „Ég hef verið að gera það hérna heima […] Þetta hafa verið sveppir, MDMA og efni sem heitir DMT,“ segir hún.

„Ég fór fyrst í nokkrar þannig meðferðir. En svo undanfarið hef ég verið að fara í stærri ferðalög með efni sem heitir iboga, er talið vera Mount Everest af hugvíkkandi efnum,“ segir hún.

Eva segir að það séu aðilar hérlendis sem bjóða upp á slíkar „meðferðir“ en það sé hins vegar ekki löglegt. Hún lýsir fyrsta skiptinu sem hún prófaði hugvíkkandi efni. „Þetta er bara mjög merkilegt, að fara í svona,“ segir hún brosandi.

„Maður fær svona ákveðna innsýn, maður einhvern veginn sér dýpra og maður fer að skilja svolítið hlutina og atburðarrásir, af hverju hlutir eru eins og þeir eru. Það er mjög sérstakt.“

Horfðu á þáttinn á Brotkast.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Leikkona tilkynnir að eiginmaðurinn sé farinn frá henni í átakanlegri færslu

Leikkona tilkynnir að eiginmaðurinn sé farinn frá henni í átakanlegri færslu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hundasamfélagið klofið eftir að maður skaut hundinn sinn sjálfur – „Hvað er eiginlega að gerast, má ekkert lengur?“

Hundasamfélagið klofið eftir að maður skaut hundinn sinn sjálfur – „Hvað er eiginlega að gerast, má ekkert lengur?“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Einkaþjálfarinn leysir frá skjóðunni – Æfingarnar fimm sem halda Ivönku Trump í hörkuformi

Einkaþjálfarinn leysir frá skjóðunni – Æfingarnar fimm sem halda Ivönku Trump í hörkuformi
Fókus
Fyrir 2 dögum

Mynd Alexöndru vekur kátínu – Sérð þú hvað er athugunarvert við myndina?

Mynd Alexöndru vekur kátínu – Sérð þú hvað er athugunarvert við myndina?
Fókus
Fyrir 3 dögum

Nóg að gera hjá ráðherranum og þreytta aðstoðarmanninum

Nóg að gera hjá ráðherranum og þreytta aðstoðarmanninum
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð hissa þegar Sölvi sagði henni frá því sem hann sá lögreglumann gera – „Það kemur mér á óvart að heyra þetta“

Varð hissa þegar Sölvi sagði henni frá því sem hann sá lögreglumann gera – „Það kemur mér á óvart að heyra þetta“