fbpx
Fimmtudagur 02.janúar 2025
Pressan

Sænska ríkisstjórnin sökuð um að reyna að gera „fátækt útlæga“ með því að banna betl

Pressan
Fimmtudaginn 10. október 2024 19:30

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sænska ríkisstjórnin er sökuð um að reyna að gera „fátækt útlæga“ í kjölfar þess að hún kynnti hugmyndir sínar um að banna allt betl.

The Guardian segir að ríkisstjórnin, sem er miðju-hægri samsteypustjórn sem nýtur stuðnings Svíþjóðardemókratanna, sem eru lengst til hægri, hafi tilkynnt að næstu níu mánuði verði skoðað hvaða áhrif algjört bann við betli muni hafa. Ef niðurstaðan verði að það sé vænlegt að setja slíkt bann, muni lagafrumvarp þar um hugsanlega verða lagt fram.

Linda Lindberg, þingflokksformaður Svíþjóðardemókratanna, sagði á fréttamannafundi í síðustu viku að fólk, sem segist vera frá öðrum ESB ríkjum, „komi til að betla utan við verslanirnar okkar“. Svíþjóð geti ekki verið „samviska Evrópu“.

Stockholms Stadsmission, sem eru kristileg samtök sem aðstoða fólk í viðkvæmri stöðu í Stokkhólmi, fordæma hugmyndir ríkisstjórnarinnar. Talskona þeirra sagði að það að banna betl eða gera fólki að sækja um leyfi til að mega betla, sé aðeins tilflutningur á vandanum í tilgangslausri tilraun til að gera fátækt útlæga.

Hún sagði einnig að samtökin telji að það sé hægt að draga úr þeirri viðkvæmu stöðu sem þetta fólk er í með því að draga úr fátækt á skipulagðan hátt og með því að vinna gegn mismunun, bæði í upprunalöndum fólksins og innan ESB. Þetta sé langtíma verkefni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Málverk selt fyrir milljónir í gegnum tíðina – Saga þess er heldur nöturleg

Málverk selt fyrir milljónir í gegnum tíðina – Saga þess er heldur nöturleg
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hún varð heimsfræg fyrir að hafa læknast af krabbameini – En ekki var allt sem sýndist

Hún varð heimsfræg fyrir að hafa læknast af krabbameini – En ekki var allt sem sýndist
Pressan
Fyrir 3 dögum

Óhugnaðurinn í Magdeburg – Er hann í raun læknir?

Óhugnaðurinn í Magdeburg – Er hann í raun læknir?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Trump biður hæstarétt að setja ný TikTok-lög í frost

Trump biður hæstarétt að setja ný TikTok-lög í frost
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þetta er besti maturinn þegar timburmenn herja á

Þetta er besti maturinn þegar timburmenn herja á
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þetta eru þær dýrategundir sem verða flestu fólki að bana árlega

Þetta eru þær dýrategundir sem verða flestu fólki að bana árlega