Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga Nagli, hvetur fólk til að hætta að reyna að þóknast öllum, það er einfaldlega ekki hægt og mjög þreytandi þar að auki. Hún útskýrir af hverju í nýjum pistli á Facebook, en pistlar hennar um heilsu á mannamáli hafa notið mikilla vinsælda um árabil.
Ragnhildur er sálfræðingur með áherslu á heilsusálfræði og lærður einkaþjálfari.
Ragnhildur segir að það sem hún kallar „manneskjugeðjun“ sé streituviðbragð við ógnvekjandi aðstæðum þar sem við þóknumst og geðjumst til að draga úr hættunni.
„Okkur finnst við bera ábyrgð á tilfinningum annarra og það sé okkar starf að halda öllum urlandi glöðum. Biðjumst afsökunar þó við séum saklaus.
Segjumst vera sammála þó við séum ósammála. Þarfir annarra eru á SAGA class en okkar eigin í farangursrýminu.“
Ragnhildur segir að við eigum það til að þora ekki að setja mörk og fáum bara kvíða við tilhugsunina, að við hræðumst viðbrögð annarra við mörkunum.
„Þorum ekki að nota raddböndin til að láta skoðanir okkar í ljós. Eins og útspýtt hundsskinn að passa að öll í kringum okkur séu örugglega urlandi glöð. Fáum hjartslátt og hnakkasvita ef ágreiningur er í aðsigi.“
Eflaust tengja einhverjir við skrif Ragnhildar. Hún fer yfir nokkrar ástæður fyrir „manneskjugeðjun.“
Ragnhildur segir að „manneskjugeðjarar“ eigi það til að ofurútskýra einhverja langa ástæðu fyrir einhverju, í stað þess að segja einfaldlega bara nei.
„Með löðrandi handarkrika fáum við munnræpu með löngum lista af afsökunum svo ekki sé hægt að pota neins staðar í NEI-ið okkar,“ segir hún.
„Við viljum að ÖLLUM líki vel við okkur ALLTAF og ALLS STAÐAR. En okkur líkar ekki við alla alls staðar og alltaf. Það sama gildir um annað fólk.“
Ragnhildur segir að það sé hægt að venja sig af þessari hegðun, þar sem „manneskjugeðjun er lærð hegðun.“
„En það krefst æfingar og eitt skref í því ferli er að kyrja þessar möntrur daglega,“ segir hún.
Ragnhildur fer yfir nokkrar möntrur sem má lesa hér að neðan. Eins og: „Öllum þarf ekki að líka vel við mig. Ég er ekki allra og öll eru ekki fyrir mig,“ og „þó einhver fari í fýlu þýðir ekki að ég hafi ekki átt að setja mörk.“