Fjölmiðlamaðurinn og rithöfundur Illugi Jökulsson bendir fólk á að setja nágrannavörsluhattinn á sig, eftir að hann varð var við meintan innbrotsþjóf hjá nágranna sínum.
„Í gærkvöldi milli 10 og 11 heyrði ég þrusk úti í nóttinni og þegar ég stökk út í glugga sá ég mann standa við dyr hjá nágranna mínum einum og munda síma sinn. Ég kallaði til hans með nokkrum þjósti og spurði hvað hann væri að gera og hann sagðist hafa ruglast aðeins og gekk svo hraðstíga burt,“
skrifar Illugi í færslu á Facebook-síðu sína. En færslu hans var einnig dreift í íbúahópa miðborgarinnar.
„Mér þykir augljóst að maðurinn hafi verið að taka myndir af útidyrum hér í Þingholtunum og ætli svo að færa myndirnar vinum sínum innbrotsþjófunum. í því sambandi er kannski vert að taka fram að maðurinn var auðheyrilega rammíslenskur. En mórall sögunnar er þessi: Hafið varann á ykkur ef þið sjáið menn vera að „ruglast aðeins“ við útidyr nágranna ykkar.“
Gott er að gera ráð Illuga að sínu, þekkja nágranna sína í sjón hið minnsta og vita því hvenær ókunnugir einstaklingar eru að þvælast um við heimili nágrannanna.