Nú eru tíu ár liðin síðan Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, sendi her „lítilla, grænna manna“ til Krímskaga með þeim fyrirmælum að hertaka skagann og svipta úkraínsk yfirvöld völdum þar. Skömmu síðar innlimuðu Rússar Krím í Rússland og síðan hafa Rússar farið með völdin á skaganum.
En það gæti breyst innan ekki svo langs tíma. Hugveitan Atlantic Council segir í nýrri greiningu að margt bendi til að Rússar séu að missa tökin á Krím. Segir hugveitan að árásir Úkraínumanna séu „hægt“ en „örugglega“ að veikja tök Rússa á skaganum.
Segir hugveitan að Úkraínumenn hafi á þessu ári náð „mörgum stefnumótandi sigrum á og við skagann“ og það sé þess virði að veita þeim athygli því þeir geti haft áhrif á hvernig stríðinu lýkur.
Segir hugveitan að Úkraínumönnum hafi tekist að hæfa mörg rússnesk skotmörk á árinu, skotmörk sem gegni mikilvægu hernaðarlegu hlutverki fyrir Krím og herteknu svæðin í suðurhluta Úkraínu. Meðal þessara skotmarka eru flugvellir, ratsjár og loftvarnarkerfi.
Úkraínumenn hafa aðallega notað bandarísk ATACMS-flugskeyti og bresk Storm Shadow-flugskeyti við þessar árásir.
Einnig hafa sífelldar árásir Úkraínumanna með sjávardrónum gert rússneska Svartahafsflotanum lífið leitt og í júlí neyddist hann til að yfirgefa hafsvæðið við Krím.
Úkraínumenn segjast hafa eyðilagt þriðjung rússneska Svartahafsflotans, sem taldi um 80 skip fyrir stríð, síðan innrás Rússa hófst.
Úkraínskum sérsveitum hefur tekist vel upp við árásir á mikilvæga hernaðarinnviði á Krím. Atlantic Council segir að þetta hafi neytt Rússa til að flytja stóran hluta af loftvarnarkerfum sínum frá norðvesturhluta Krím. Loftvarnarkerfin eru nú við Kerch-brúna.
Kerch-brúin er mikilvæg samgönguæð fyrir Rússa og eitt helsta montverkefni Pútíns. Hann vígði brúna 2019.
Margir Úkraínumenn telja hana tákn ólöglegrar innlimunar Krím í Rússland.
Fyrrgreindar aðgerðir Úkraínumanna og viðbrögð Rússa við þeim þýða að aðrir hlutar Krím eru mjög viðkvæmir fyrir árásum úkraínska hersins að mati Atlantic Council.
Sérfræðingar telja líklegt að Úkraínumenn muni fljótlega ráðast á Kerch-brúna til að eyðileggja hana. Ef það tekst þá mun það gera Rússum mjög erfitt fyrir við að koma vistum og fólki til og frá Krím og til vígstöðvanna í suðurhluta Úkraínu.