Diddy er sem stendur í gæsluvarðhaldi sakaður um að kynferðisbrot, mansal og kynlífsþrælkun. Hingað til hafa 12 konur stigið fram og sakað hann um brot gegn sér en Diddy er eins sagður hafa þvingað konur og kynlífsverkafólk til að taka þátt í kynsvalli sem hann hélt fyrir nafntogaða einstaklinga. Hann tók svo myndbönd af orgíunum og jafnvel notað til að kúga fólk. Meðal annars halda saksóknarar því fram að hann hafi gengið svo nærri kynlífsverkafólkinu og gestum í kynsvallinu að fólk þurfti að fá næringu í æð eftir fíkniefnaneyslu, vökvatap og örmögnun.
Nú velta aðdáendur fyrir sér: Tóku frægu gestirnir þátt í ofbeldinu? Horfðu þeir upp á það? Vissu þeir um það? Eða voru þeir farnir áður en eitthvað gerðist?
Samkvæmt Us Weekly var ákveðið merki sem sagði fólki að partýið væri að fara úr böndunum og tími kominn til að fara heim fyrir þau sem vildu ekki taka þátt.
„Það sem gerðist fyrir klukkan tvö um nóttina var ekkert miðað við það sem gerðist klukkan fimm,“ sagði heimildarmaður, sem sagðist sjálfur hafa verið gestur í partýi hjá Diddy.
„Þessi partý voru þekkt fyrir að vera villt, það gat allt gerst.“
Samkvæmt öðrum heimildarmanni – sem segist hafa séð um að redda gestum í hvítu partý Diddy frá 2006 til 2011 – þá fóru margir stjörnugestir snemma heim áður en allt fór úr böndunum.
„Stelpur byrjuðu að fækka fötum, það var merkið fyrir fólk að fara,“ sagði hann.
Heimildarmaðurinn sagði að á þeim tíma hafi fíkniefni verið dregin fram.
„Kynlífsverkakonur [voru þarna og] gerðu allt sem þú vildir,“ sagði þriðji heimildarmaðurinn.
Sjá einnig: Hvíta partý Diddy var vinsælt meðal stjarnanna – Smáatriði í gömlu myndbandi vekur óhug
Diddy er sagður hafa kallað kynlífspartýin sín „freak offs.“ Hann er sagður hafa borgað flug undir vændiskonur frá öllum heimshornum til að taka þátt í kynsvallsveislum sem stundum stóðu yfir í nokkra daga. Diddy er sagður hafa skipulagt þessar veislur og stýrt þeim og meðal annars „stundað sjálfsfróun“ á meðan á þeim stóð. Á sama tíma er hann sagður hafa útvegað þessum konum fíkniefni á borð við ketamín og MDMA og efni sem kallast BHB sem á meðal annars að auka úthald.