CNN segir að Trump hafi kynnt úrin á samfélagsmiðli sínum, Truth Social, á fimmtudaginn. Hann segir að úrin séu hin fullkomna jólagjöf.
Úrin kosta sem svarar til 67.000 íslenskum krónum stykkið. En Trump er auðvitað einnig með lúxusseríu, sem heitir Tourbillon, og þar er verðið öllu hærra eða sem svarar til um 13 milljóna íslenskra króna fyrir eitt úr.
„Þessi úr eru algjörlega einstök. Þú munt elska þau,“ skrifaði Trump á Truth Social.
Frá því að Trump tilkynnti um framboð sitt fyrir tveimur árum, hefur hann þénað milljónir dollara á að selja varning með nafni sínu og mynd. Hann selur einnig strigaskó og tvær bækur.
En úrin eru ekki það eina sem Trump setti á markað í síðustu viku því hann byrjaði einnig að selja „Trump coins“ sem eru silfurpeningar með mynd af Trump öðru megin og eiginhandaráritun hans á Hvíta húsinu á hinni hliðinni.