Hún greindi frá því á Instagram í gær. „Er með tattoo sem mig hefur lengi langað að fjarlægja, er loksins að byrja meðferðina núna,“ segir hún og birtir mynd af fætinum, en ekki tattúinu sjálfu.
Sunneva fór nánar út í málið á TikTok. „Mig hefur langað að láta eyða þessu tattúi í mörg ár. Ég fékk mér þetta tattú þegar ég var tvítug og hef séð eftir því síðan þá. Ég er alveg með mörg tattú en þetta er eina tattúið sem mig langar að hverfi. Þetta var kúl á þeim tíma en svo í dag hef ég komist að því að þetta hefur allt aðra þýðingu en ég hélt,“ segir hún.
„Ég elska ananas, og ég fékk mér ananas tattú þegar ég var 20 ára því ég elska ananas,“ segir hún og hlær.
„Ég hefði alveg getað hugsað þetta betur en ég labbaði inn á einhverja tattústofu í London og lét tattúa þetta á mig og þetta er hræðilega ljótt og á ljótum stað líka. Ef þið vitið hvað ananas þýðir í öðrum merkingum þá er þetta smá slæmt. En já, ég veit ekki hvort ég eigi að fara nánar út í það.“
Ananas er eins konar alþjóðlegt merki þeirra sem eru í swinger-senunni og er notað til að gefa öðrum í svipuðum hugleiðingum skilaboð um að þú sért sama sinnis.
@sunnevaeinarsHefur einhver prufað að láta eyða tattooinu sínu?? Viljiði updates? | sp♬ original sound – Sunneva Einars
Sunneva er með nokkur tattú víðsvegar um líkamann. Hún er með dreka á bakinu, texta á mjöðminni og nokkur lítil á handleggjunum.
@sunnevaeinars Replying to @Þ-eva ♬
Sjá einnig: Sunneva Einars móðgaði fólk en svo var það misskilningur