fbpx
Miðvikudagur 02.október 2024
Eyjan

Hjúkrun með CBD

Eyjan
Miðvikudaginn 2. október 2024 06:00

Guðrún Bergmann.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðsend grein eftir Guðrúnu Bergmann, rithöfund, fyrirlesara og heilsu- og lífsstílsráðgjafa:

Í flestum löndum Austur-Evrópu er mikil ræktun á hampi, sem hægt er að nota í ótal afurðir, allt frá lyfjum og upp í byggingariðnað. Samt sem áður eru reglur um notkun hamps nokkuð á reiki og ekki er samræmi milli allra stofnana sem að málinu koma.

Slóvenía er eitt af þessum löndum, en samt lenti hjúkrunarfræðingurinn Jasna KovaV, aðeins á vegg þegar hún var að skrifa meistararitgerð sína. Ritgerðin fjallaði um reynslu foreldra barna sem nota kannabínóða eð önnur kannabisefni sem lyf við sjúkdómum sínum. Hún fékk höfnun frá Heilbrigðisráðuneytinu í Slóveníu á verkefninu sem hún hafði valið, þar sem því var haldið fram að hún væri að hvetja til ólöglegrar neyslu á kannbis. Jasna fékk því ekki að halda áfram með verkefni sitt fyrr en leiðbeinendur hennar, sem voru læknar og vísindamenn, lögðu orð í belg og skýrðu málið nánar.

CBD NOTAÐ BÆÐI FYRIR UNGA OG ELDRI

Þrátt fyrir þetta er kannabis notað við hjúkrun, en Jasna segir að enn skorti á kennslu og þjálfun hjúkrunarfræðinga, meðal annars til að þeir geti gefið efnið í réttum skömmtum og viti hvaða form af CBD eða kannabínóðum henti hverjum og einum best.

CBD eða kannabínóðar eru notaðir víða meðal eldri borgara landsins og þegar Jasna vann eitt sinn á einkareknu hjúkrunarheimili fyrir eldri borgara, þurfti hún ekki að vita mikið um skammta eða slíkt. Eldri borgararnir vissu allt um málið og það voru því þeir sem kenndu henni.

HAMPUR FYRIR FRAMTÍÐINA

Jasna KovaV verður einn af fyrirlesurunum á ráðstefnunni HAMPUR FYRIR FRAMTÍÐINA sem haldin verður í Salnum í Kópavogi dagana 11. og 12. október. Hún mun þar fjalla ítarlegar um notkun CBD við hjúkrun í Slóveníu og þann árangur sem það hefur borið. Jasna er stofnandi og núverandi formaður samtakanna MEDCA, sem eru samtök hjúkrunarfólks og annarra sem vinna með kannabínóða við meðhöndlun sjúklinga.

Jafnframt er Jasna meðlimur ACNA eða American Cannabis Nurses Association. Þangað leitaði hún eftir aðstoð þegar hún var að vinna meistararitgerð sína og stofnaði í framhaldi af því MEDCA í Slóveníu. Það er væntanlega mjög áhugavert fyrir þá sem stunda hjúkrun hér á landi að kynna sér þá þekkingu sem Jasna býr yfir.

HÉR ER hlekkur á ráðstefnuna

Hér er hlekkur inn á YouTube rás Guðrúnar

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Jóhann Páll Jóhannsson skrifar: Ríkisstjórn bregst vinnandi fólki

Jóhann Páll Jóhannsson skrifar: Ríkisstjórn bregst vinnandi fólki
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Davíð svarar Áslaugu Örnu og segir hægri menn ekki geta sameinast í Sjálfstæðisflokknum – „Þeim flokki er ekki treystandi“

Davíð svarar Áslaugu Örnu og segir hægri menn ekki geta sameinast í Sjálfstæðisflokknum – „Þeim flokki er ekki treystandi“
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Klofningurinn á hægri væng íslenskra stjórnmála

Sigmundur Ernir skrifar: Klofningurinn á hægri væng íslenskra stjórnmála
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Bergþór Ólason: Pólitískur ómöguleiki að Svandís verði fagráðherra í ríkisstjórn Bjarna Ben í kosningabaráttu

Bergþór Ólason: Pólitískur ómöguleiki að Svandís verði fagráðherra í ríkisstjórn Bjarna Ben í kosningabaráttu
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sárnar fréttaflutningur um sinn meinta hlut í hallarbyltingu innan Pírata – „Ég finn mig knúna til að árétta nokkur atriði“

Sárnar fréttaflutningur um sinn meinta hlut í hallarbyltingu innan Pírata – „Ég finn mig knúna til að árétta nokkur atriði“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þórður Snær til liðs við Samfylkinguna

Þórður Snær til liðs við Samfylkinguna
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Áslaug Arna segir frá hráka og hótunum

Áslaug Arna segir frá hráka og hótunum
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Töframeðal stjórnmálanna

Þorsteinn Pálsson skrifar: Töframeðal stjórnmálanna