Andres Iniesta hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir magnaðan feril en spænski miðjumaðurinn er fertugur.
Iniesta hefur velt málinu fyrir sér eftir að samningur hans við Emirates Club í Sameinuðu arabísku furstadæmunum rann út.
Iniesta hafði þar áður leikið í Japan í nokkur ár en er þekktastur fyrir tíma sinn hjá Barcelona.
Iniesta mun formlega greina frá þessari ákvörðun sinni í næstu viku samkvæmt miðlum á Spáni.
Iniesta vann allt sem hægt var að vinna með Barcelona og varð Heims og Evrópumeistari með Spáni.
Um tíma var talað um Iniesta sem einn besta miðjumann í heimi.