Það verður að teljast líklegt að Aron Einar Gunnarsson spili sinn fyrsta leik fyrir Al-Gharafa þegar liðið mætir Al-Ain í Meistaradeildinni í Asíu í kvöld.
Aron var kynntur til leiks sem leikmaður Al-Gharafa á sunnudag en hann hefur sést á æfingum liðsins síðustu daga.
Al-Gharafa auglýsir leikinn þar sem Aron er fremst á auglýsingunni sem bendir til þess að hann verði með í kvöld.
Age Hareide kynnir nýjan landsliðshóp á morgun og gæti endurkoma Arons á völlinn í Katar orðið til þess að hann snúi aftur í hópinn.
Aron lék sex leiki með Þór í Lengjudeildinni í haust áður en hann hélt út til Katar og samdi við Al-Gharafa.
يـوم الـمبـاراة ⚽️#دوري_أبطال_آسيا_النخبة pic.twitter.com/eqUKRNP7Db
— AL GHARAFA SC | نادي الغرافة (@ALGHARAFACLUB) October 1, 2024