Það var klukkan sex að morgni á fimmtudaginn sem 12 lögreglumenn komu heim til Adam í embættisbústað hans á Upper East Side. Þeir voru komnir til að sækja farsíma hans að sögn Alex Spiro, lögmanns hans.
„Þeir sendu tug lögreglumanna til að sækja síma sem við hefðum afhent þeim með ánægju,“ sagði Spiro í samtali við New York Times.
Ástæðan fyrir þessari morgunheimsókn er að Adams, sem er 64 ára, hefur verið ákærður fyrir fimm brot, þar á meðal fjársvik og fyrir að hafa tekið við kosningaframlagi frá erlendum ríkisborgurum. Hann er einnig ákærður fyrir að hafa tekið við mútum árið 2016 í formi flugmiða frá Turkish Airlines, máltíðum og hótelherbergi að verðmæti rúmlega 100.000 dollara. Hann er einnig ákærður fyrir að hafa þrýsta á slökkviliðið í New York að samþykkja notkun húsnæðis í New York fyrir tyrkneska ræðismannsskrifstofu þrátt fyrir að öryggismálum væri ábótavant. Málið verður tekið fyrir hjá alríkisdómstóli.
New York Times, sem hefur ákæruna undir höndum, segir gjafirnar hafi verið frá „auðugu erlendu kaupsýslufólki og að minnsta kosti einum tyrkneskum embættismanni“.
Adams segir að ákærurnar séu „uppspuni“ og að hann muni ekki segja af sér sem borgarstjóri. Hann boðaði til fréttamannafundar á fimmtudaginn fyrir framan heimili sitt og segir CNN að hann hafi beðið borgarbúa um að bíða og hlusta á vörn hans áður en þeir fella dóm.
Kathy Hochul, ríkisstjóri í New York ríki, hefur vald til að setja Adams af sem borgarstjóra. Fyrir helgi sagðist hún ætla að fara yfir ákæruna og taka ákvörðun í framhaldinu.