Enzo Maresca, stjóri Chelsea, viðurkennir að hann hafi reynt að losa miðjumanninn Carney Chukwuemeka í sumar.
Chukwuemeka var í viðræðum við nokkur félög í sumarglugganum en ekkert varð úr þeim félagaskiptum að lokum.
Miðjumaðurinn er alls ekki fyrsti maður á blað hjá Maresca og kom ekkert við sögu í 4-2 sigri á Brighton í gær.
,,Ég segi það sama og ég hef sagt margoft: Carney er mjög góður leikmaður,“ sagði Maresca við blaðamenn.
,,Eins og er þá erum við með marga góða leikmenn og það hefði verið betra fyrir hann að fara annað og sanna sig, að spila 30 til 35 leiki.“
,,Því miður þá gerðist það ekki og hann er okkar leikmaður. Hann fékk nokkrar mínútur á dögunum en í dag var hann ekki með. Vonandi fær hann meira að spila.“