Ungur ökumaður var sviptur ökuréttindum í gær eftir að lögreglan á Vesturlandi stóð hann að ofsaakstri. Lögreglumenn voru við löggæslueftirlit við Hafnarfjall í gærkvöldi þegar þeir mættu bifreið sem var ekið á 145 km/klst. Lögregla veitti bifreiðinni eftirför en ökumaður stöðvaði ekki för sína heldur gaf í og þegar hann mætti næsta lögreglubíl þá mældist hraðinn 188 km/klst. Ökumaður gafst svo upp á Hvítárvallarvegi og var handtekinn á staðnum. Ökumaður og farþegar hans voru 17 og 18 ára gamlir. Hafði lögregla því samband við foreldra og barnavernd var gert viðvart. Ökumaðurinn var svo fluttur á lögreglustöðina á Akranesi þar sem hann var sviptur ökuréttindum og á hann nú von á hárri sekt.