fbpx
Föstudagur 27.september 2024
Pressan

Dýralæknir segir að þetta bendi til að tími sé kominn til að kveðja hundinn

Pressan
Föstudaginn 27. september 2024 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hundar eru ekki bara bestu vinir okkar mannanna, þeir eru líka fastur hluti af mörgum fjölskyldum. Það er því auðvitað mjög sárt og erfitt að vita hvenær tími er kominn til að kveðja hundinn hinstu kveðju. En dýralæknir veitti nýlega góð ráð um þetta.

Sean McCormak, yfirdýralæknir hjá tails.com, veitti innsýn í þau merki sem benda til að hundurinn nálgist lífslok og veitti eigendum góð ráð um hvernig þeir geta undirbúið sig undir þennan erfiða tíma.

Hann sagði að oft séu ákveðin einkenni hjá hundum túlkuð sem venjuleg merki um öldrun en í raun geti þau verið vísbending um að hundurinn þjáist eða að lífsgæði hans séu minni en áður og að ævilok séu nærri.

Hann sagði að eftirtalin einkenni geti verið merki um sársauka eða almenna vanlíðan:

Hundurinn heldur meira aftur af sér en áður.

Hann skiptir sér minna af umhverfi sínu en áður og sefur meira.

Hefur lítinn sem engan áhuga á að leika sér.

Á erfitt með að ganga langar vegalengdir, að fara upp tröppur eða inn í bílinn.

Hann lagði áherslu á að hundaeigendur séu meðvitaðir um þessar breytingar og ræði þær við dýralækninn.

Hann benti einnig á að oft sé hægt að grípa til aðgerða sem draga úr sársauka og bæta lífsgæði hunds á síðast hluta ævinnar en það sé háð því að fólk hunsi ekki snemmbúin aðvörunarmerki.

Hvernig undirbý ég mig og tek þessa erfiðu ákvörðun?

Undirbúningurinn undir hinstu kveðjuna hefst með samtali hjá dýralækninum um rétta tímapunktinn og möguleikana á að svæfa hundinn.

McCormack sagði að mikilvægt sé að eyða verðmætum tíma með hundinum á síðustu dögum hans, dekra við hann og sjá til þess að honum líði eins vel og hægt er. „Að velja svæfingu einum degi of snemma en einum degi of seint seint, getur fært fólki meiri frið en eftirsjá,“ sagði hann.

Hvernig fer aflífun fram?

Sjálf aflífunin (svæfing) er venjulega framkvæmd með því að hundinum er gefinn of stór skammtur af svæfingarefni. Það tryggir því að dauðinn er sársaukalaus og að hundurinn sé ekki stressaður. Ef hundurinn er órólegur þegar að þessu kemur er hægt að gefa honum róandi.

McCormack sagði að eini sársaukinn, sem hundurinn finni fyrir, sé þegar hann sé stunginn með sprautunálinni.

Þegar hundurinn er dáinn, geta ákveðin líkamleg viðbrögð átt sér stað, til dæmis að þvagblaðran tæmist eða djúpur andardráttur. Þetta er algengt en er ekki merki um þjáningar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Létu fjölda dæmdra glæpamanna lausa vegna mistaka

Létu fjölda dæmdra glæpamanna lausa vegna mistaka
Pressan
Í gær

Atlantshafið búið að gleypa þrjú hús við sömu götu á einni viku

Atlantshafið búið að gleypa þrjú hús við sömu götu á einni viku
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hér vantar fólk til starfa – Meðalmánaðarlaun eru 920.000 krónur

Hér vantar fólk til starfa – Meðalmánaðarlaun eru 920.000 krónur
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hana dreymdi um að opna lítinn veitingastað – Varð mun meira en það

Hana dreymdi um að opna lítinn veitingastað – Varð mun meira en það
Pressan
Fyrir 2 dögum

Göngutúr með heimilishundinn varð mæðgum dýrkeyptur

Göngutúr með heimilishundinn varð mæðgum dýrkeyptur
Pressan
Fyrir 2 dögum

Iðnaðarmaður gerði óhugnanlega uppgötvun þegar hann gerði við svalagólf

Iðnaðarmaður gerði óhugnanlega uppgötvun þegar hann gerði við svalagólf
Pressan
Fyrir 3 dögum

Handtekinn grunaður um tvöfalt morð 1977

Handtekinn grunaður um tvöfalt morð 1977
Pressan
Fyrir 3 dögum

Var úti að leika þegar honum var rænt sex ára gömlum – 70 ára leit fjölskyldunnar á enda

Var úti að leika þegar honum var rænt sex ára gömlum – 70 ára leit fjölskyldunnar á enda