fbpx
Fimmtudagur 26.september 2024
Fréttir

Þórður segir réttlætingar-færslu lögreglunnar einstaka í Íslandssögunni – „Þetta má aldrei gerast aftur“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 26. september 2024 13:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á Norðurlandi eystra tilkynnti í dag að rannsókn á svokölluðu byrlunar- og símamáli hefði verið felld niður. Fjölmiðlamaðurinn Þórður Snær Júlíusson var einn af sakborningum málsins en hann segir að reynslan hafi breytt sýn sinni á samfélagið og að tryggja þurfi að viðlíka muni aldrei eiga sér stað aftur.

Þórður tjáir sig um málið á Facebook þar sem hann segir að meðal annars vegna þess hafi hann ákveðið að skipta um kúrs í lífinu. Hann hætti nýlega sem annar ritstjóri Heimildarinnar og gefur nú út fréttabréfið Kjarnyrt.

„Mér var haldið í stöðu sakbornings í 961 dag í rannsókn sem staðið hefur í nálægt þrjú og hálft ár. Á þeim tíma var ein skýrsla tekin af mér, í ágúst 2022, fyrir rúmlega 25 mánuðum síðan. Á meðan fékk handfylli manna, með hjálp ýmissa skráðra fjölmiðla, að spinna ótrúlegar lygasögur utan á þetta mál. Setja fram súrrealískar staðhæfingar sem áttu sér enga stoð í raunveruleikanum.“

Málið varðaði umfjöllun Stundarinnar og Kjarnans á svokallaðri skæruliðadeild Samherja, en umfjöllunin var unnin upp úr gögnum úr farsíma skipstjórans Páls Steingrímssonar. Páll taldi að fyrrum eiginkona hans hefði byrlað honum ólyfjan til að komast yfir farsímann og afhenda hann fjölmiðlum til afritunar. Lögreglan á Norðurlandi eystra gaf sjö einstaklingum stöðu sakborninga í málinu, þar af störfuðu fimm sem blaðamenn.

„Ég, og kollegar mínir, fengum þessa réttarstöðu vegna þess að hluti okkar skrifaði fréttir um það hvernig hópur fólks, með vitund og vilja stjórnenda eins stærsta fyrirtækis landsins, vann skipulega að því að reyna að hafa æruna, heilsuna og lífsviðurværið af blaðamönnum sem fjölluðu um fyrirtækið. Hvernig hópurinn reyndi að hafa áhrif á kosningar í stéttar- og fagfélagi blaðamanna. Hvernig hann skipulega reyndi að rægja færeyska blaðamenn. Lagði á ráðinn um að setja fram tilefnislausa kæru á hendur uppljóstrara gagngert til að reyna að koma í veg fyrir að hann bæri vitni gegn fyrirtækinu. Ætluðu að draga úr trúverðugleika rithöfunda sem hafði gagnrýnt fyrirtækið, Hafa áhrif á hverjir leiddu lista stjórnmálaflokks, planaði víðtæka gagnasöfnun um stjórn félagasamtaka sem berst gegn spillingu og hvernig bregðast átti við gagnrýni frá sitjandi seðlabankastjóra á stríðsrekstur fyrirtækisins gagnvart nafngreindu fólki.
Þetta voru allt ein­stakar aðfarir í sögu Íslands. Þær voru lýð­ræð­is­lega stór­hættu­legar.“

Sjá einnig: Rannsókn á símastulds- og byrlunarmálinu hætt

Þórður segir að lögregla á Norðurlandi eystra reyni nú að réttlæta þessa löngu og tilhæfulausu rannsókn með langri færslu á Facebook sem hljóti að vera einstök í Íslandssögunni eins og hún leggur sig.

„Með því að ráðast í þessa rannsókn sem átti sér aldrei nokkurn grundvöll, eftir handriti eins þess sem við fjölluðum um og með opinberum stuðningi ákveðinna stjórnmálamanna, og viðhalda henni í allan þennan tíma sem raun ber vitni, var aftur reynt að hafa af okkur æruna, heilsuna og lífsviðurværið. Ömurleg tilraun lögreglunnar á Norðurlandi eystra til að réttlæta aðfarir sínar gagnvart blaðamönnum á Facebook-síðu sinni, sem mér skilst að sé einstök í Íslandssögunni, gerir ekkert annað en að gera svartan blett á réttarríkinu enn stærri.

Allt þetta ferli er einstakt í sögu Íslands. Og er líka lýðræðislega stórhættulegt.

Mér er mjög létt yfir því að þessari aðför sé lokið, en ég er líka mjög reiður yfir því sem hefur fengið að eiga sér stað. Málið hefur breytt sýn minni á samfélagið og hafði áhrif á að ég ákvað að skipta um kúrs í lífinu. Það hefur sýnt mér að ef maður stendur ekki upp og berst fyrir því sem er réttlátt, sanngjarnt og satt, jafnvel þótt að valdamesta fólk landsins sé mótaðilinn, þá gerir það enginn fyrir mann.

Þetta má aldrei gerast aftur og ég ætla að beita mér að öllu afli fyrir því.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Vinsælasti borgarfulltrúinn ætlar á þing

Vinsælasti borgarfulltrúinn ætlar á þing
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Móðir drengsins sem lést íhugar að fara í skaðabótamál

Móðir drengsins sem lést íhugar að fara í skaðabótamál
Fréttir
Í gær

Fólk í áfalli eftir fréttaskýringaþátt Kveiks í gærkvöldi

Fólk í áfalli eftir fréttaskýringaþátt Kveiks í gærkvöldi
Fréttir
Í gær

Hinn látni í slysinu á Fossá lögreglumaður frá Hong Kong – Eiginkona hans alvarlega slösuð

Hinn látni í slysinu á Fossá lögreglumaður frá Hong Kong – Eiginkona hans alvarlega slösuð