Mótanefnd KSÍ hefur staðfest niðurröðun leikja í umferðum 4 og 5 í seinni hluta Bestu deildar karla, sem þýðir að leikjaniðurröðun allra umferða mótsins er nú staðfest.
Nú er staðfest að allir nema einn leikur fari fram á laugardegi í lok október.
Það er hins vegar leikur Víkings og Breiðabliks sem fram fer á sunnudegi en Víkingur á leik í Evrópu á fimmtudeginum.
Neðri hlutinn klárast einnig á laugardegi en þar eru fjögur lið að berjast við falldrauginn.