fbpx
Fimmtudagur 26.september 2024
Fókus

Sá hvað umdeilt lyf reyndist Stefáni Karli vel – „ Það sló áberandi og miklu betur á ógleði“

Fókus
Fimmtudaginn 26. september 2024 10:30

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Mynd: KSJ/DV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það er löngu kominn tími til að við endurhugsum þetta og leyfum fullorðnu fólki að ráða því svolítið sjálft hvernig það linar sínar þjáningar,” segir Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, leikkona og forsetaframbjóðandi, í nýjasta þætti Hampkastsins, umræðuþætti Hampfélagsins, en Steinunn Ólína mun í næsta mánuði stýra tveggja daga ráðstefnu, Hampur til framtíðar, sem haldin verður í Salnum í Kópavogi. Hún hefur sjálf reynslu af notkun lyfjahamps í gegnum mann sinn, Stefán Karl Stefánsson, sem háði hetjulega baráttu við krabbamein en laut í lægra haldi árið 2018.

Steinunn Ólína segist mikinn áhuga hafa á kannabisplöntunni og sé því ákaflega spennt fyrir ráðstefnunni enda muni þar stíga á stokk þungavigtarfólk í iðnaðinum og fjalla annars vegar um iðnaðarhamp og hins vegar lyfjahamp. Hún segir sérstaklega áhugavert að fara muni fram umræða um áhrif CBD og THC á líkamsstarfsemi kvenna, bæði á tíðahringinn og hormónakerfið.

„Lyfjaiðnaðurinn hefur reynt að fletja út geðslag kvenna í stað þess að konur læri að vinna með þá ofurkrafta sem hormónakerfið okkar er. Ég held að kannabis eigi eftir að koma mjög sterkt inn sem lyf fyrir konur.” Hún vísar til þess að í frumbyggjamenningu víða sé plantan álitin kvennaplanta og hafi verið notuð til að lina þjáningar kvenna í fæðingu og við slæmum tíðaverkjum. Hún vonast til þess að heilbrigðisráðherra og starfsfólk úr heilbrigðisgeiranum sjái sér fært að mæta enda orðið mjög útbreitt að fólk noti lyfjahamp í lækningaskyni á ólöglegan hátt.

„Sjálf þekki ég margt fólk sem þarf að fara afdalaleiðir til þess ađ nota CBD með THC í lækningaskyni en það fær með því bestu bótina og þetta er ótækt. […] Plantan er hrein snilld og gjöf til fólksins á jörðinni með alla sína eiginleika. Ég vona að það sé ekki langt að líða þar til lyfjahampur verður löglegur undir einhvers konar eftirliti.”

Steinunn Ólína og Gunnar Dan Wiium.

Hefðu getað svæft allan Vesturbæinn

Sjálf notar Steinunn Ólína ekki kannabis, segist hafa gert heiðarlega tilraun sem unglingur til að gerast hasshaus en ekki með góðum árangri. „Mér fannst víman aldrei þægileg en ég reykti með öðrum til að prófa. Þetta var aldrei mitt vímuefni. Ég lagðist aftur á móti í brennivínið af mikilli hörku,” segir hún og bætir við að hún sé löngu hætt að drekka áfengi. En þrátt fyrir að kannabis hafi ekki heillað hana hefur Steinunn Ólína góða reynslu af notkun kannabis því að eiginmaður hennar, Stefán Karl, greindist með krabbamein árið 2016.

„Það var í raun fyrir tilviljun að hann fór að nota kannabis til að lina sínar þjáningar. Það kom þannig til að ýmsir ræktendur í Reykjavík fóru að færa honum olíu, svona hreina RSO, Rick Simpson olíu, og á tímabili barst okkur svo mikið magn af gjöfum að við hefðum líklega getað svæft allan Vesturbæinn ef ekki stór-Reykjarvíkursvæðið. Og þá sá ég hvað þetta lyf reyndist honum vel.”

Steinunn Ólína segir að þeim hafi verið fullljóst að lyfjahampurinn myndi ekki lækna hann af krabbameini en hafi engu að síður reynst Stefáni Karli betur en ýmis önnur lyf. „Seinna árið þegar það var orðið erfitt fyrir hann að halda holdum og halda niðri mat, því að það var mikil ógleði samhliða lyfjameðferðunum og af þeim lyfjum sem hann vegna veikinda sinna varð að taka, þá kom kannabis sterkt inn því að það sló áberandi og miklu betur á ógleði en öll ógleðilyfin og það virtist einnig gefa honum líkamlega betri ró auk þess að það varð til þess að hann hélt holdum. Kannabis er þekkt fyrir það að fólk verður sólgið í eitthvað matarkyns og hann var engin undantekning þar. Hann gat þrælað í sig ís á kvöldin og hélt því holdum miklu lengur, því annars var það honum mikil raun að setja eitthvað ofan í sig. Það var mikið inngrip inn í hans meltingarstarfsemi og kannabis gerði það að verkum að hann hafði meiri matarlyst.”

Aðspurð segir hún að Stefán Karl hafi engin neikvæð viðbrögð fengið við því frá læknum eða úti í samfélaginu að nota kannabis enda sé ekki litið svo neikvætt á það þegar í hlut eiga sjúklingar sem virkilega þurfa á lyfjahampi að halda. „Mörgum dugar CBD en aðrir þurfa THC og ég þekki fólk sem þjáðst hefur af krónískri ristilbólgu til dæmis og þar verður THC að vera með til að minnka bólgur og lina þjáningar. Það er í raun fáránlegt að hafa fólk á lyfjum sem veita ekki sömu líkn.”

Kannabisplantan verði lögleg á Íslandi

Alþjóðlega ráðstefnan Hampur til framtíðar (e. Hemp for the Future) fer fram dagana 11. og 12. október næstkomandi í Salnum í Kópavogi. Þar leiða saman hesta sína fjölmargir virtir sérfræðingar, bæði íslenskir og erlendir, og fjalla um nýjustu vendingar þegar kemur að iðnaðarhampi og landbúnaði annars vegar og lyfjahampi hins vegar. Ráðstefnan er einstakt tækifæri til að fræðast, mynda tengsl við áhrifafólk í iðnaðinum og fá innsýn inn í það sem er að gerast og mun gerast í málefnum iðnaðarhamps og lyfjahamps í heiminum og á Íslandi.

Ráðstefnunni verður skipt niður á tvo daga, hvor með sínu umræðuefni. Á fyrri deginum verður fjallað um iðnaðarhamp frá öllum hliðum, til dæmis um þróun og nýjungar, sjálfbærni í ræktun og möguleika á vöruþróun. Síðari dagurinn verður helgaður lyfjahampi og verður sérstaklega horft til þeirra rannsókna sem staðið hafa yfir undanfarin ár og standa enn. Farið verður yfir lagalegt umhverfi og fjallað um áhrif lagabreytinga á samfélagið í heild.

Markmiðið með ráðstefnunni í október er að halda á lofti umræðunni um þau tækifæri sem felast fyrir Ísland í bæði iðnaðar- og lyfjahampi og tengja saman hagsmunaaðila á borð við löggjafa- og framkvæmdavaldið, heilbrigðisstarfsfólk, háskólafólk, fagfólk í iðnaðinum og áhugafólk um málefni hampsins. Það er von Hampfélagsins að með fræðslu verði hægt að ná settu markmiði félagsins, þ.e. að tryggja að kannabisplantan, og allar afurðir hennar, verði lögleg á Íslandi.

Miðasala fer fram á vefnum tix.is og í gegnum heimasíðu ráðstefnunnar hemp4future.is.

Viđtaliđ viđ Steinunni Ólínu má sjá í heild sinni í spilaranum hér ađ neđan. Hampkastið má finna á öllum helstu streymisveitum eins og Spotify.

Gunnar Dan Wiium, stjórnarmaður í Hampfélaginu, tók viðtalið, Mickael Lakhlifi sá um tæknimál og Andri Karel um fréttaskrif. Heimasíða Hampfélagsins er hampfelagid.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Lífið breyttist eftir að vinkona Elvu drukknaði í Bláa lóninu – „Það var ekki áfallahjálp árið 1997“

Lífið breyttist eftir að vinkona Elvu drukknaði í Bláa lóninu – „Það var ekki áfallahjálp árið 1997“
Fókus
Í gær

Önnur kona stígur fram vegna Diddy – Lýsir hrottafenginni nauðgun sem var „tekin upp og sýnd sem klám“

Önnur kona stígur fram vegna Diddy – Lýsir hrottafenginni nauðgun sem var „tekin upp og sýnd sem klám“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ferðamartröð Frosta og fjölskyldu – „Ég hef aldrei lent í öðru eins“

Ferðamartröð Frosta og fjölskyldu – „Ég hef aldrei lent í öðru eins“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Birtir fleiri einstakar myndir úr fórum hermanns sem var á Íslandi á sjötta áratugnum

Birtir fleiri einstakar myndir úr fórum hermanns sem var á Íslandi á sjötta áratugnum
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Erfiðu tímarnir gera okkur betri í því að vera hjón“

„Erfiðu tímarnir gera okkur betri í því að vera hjón“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Gummi Emil tjáir sig nánar um málið – „Mikilvægt að hafa fagfólk með sér, ekki einhverja rugludalla“

Gummi Emil tjáir sig nánar um málið – „Mikilvægt að hafa fagfólk með sér, ekki einhverja rugludalla“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Nemendur á Laugum raða inn stigum í árlegri keppni – Tannburstar notaðir til að koma í veg fyrir svindl

Nemendur á Laugum raða inn stigum í árlegri keppni – Tannburstar notaðir til að koma í veg fyrir svindl
Fókus
Fyrir 3 dögum

Stærsti skandall J.Lo dreginn fram í dagsljósið – Handtekin með Diddy eftir skotárás

Stærsti skandall J.Lo dreginn fram í dagsljósið – Handtekin með Diddy eftir skotárás