Mark Goldbridge sem heldur úti miðlinum United we Stand var brjálaður eftir 1-1 jafntefli liðsins gegn Twente í Evrópudeildinni í gær.
Goldbridge var mest pirraður yfir því að fyrirliði liðsins, Bruno Fernandes hafi verið á vellinum allan tímann.
„Til skammar,“ sagði Goldbridge í beinni útsendingu í gær og var ekki skemmt.
„Svona gerist þegar þú tekur ekki ákveðinn leikmann ekki út af, við töluðum um þetta á laugardag. Bruno spilaði aftur 90. mínútur þegar hann átti að fara út.“
Goldbridge segir það til skammar að Bruno spili allar mínútur, þetta sé Erik ten Hag að kenna.
„Það verður að horfa til Ten Hag, þú verður að hætta að halda upp á leikmenn. Það sást að Eriksen var brjálaður, það þarf að ræða þetta við hann.“
„Bruno var ömurlegur.“
„It’s favouritism!“ 👎 #mufc pic.twitter.com/HD42akbjaG
— The United Stand (@UnitedStandMUFC) September 25, 2024