Lögreglan í Hamburg í Þýskalandi handtók 60 stuðningsmen Lazio í fyrrakvöld sem fóru ekki eftir fyrirmælum um lögreglufylgd.
Lazio mætti þar Dynamo Kiev í Evrópudeildinni en liðið frá Úkraínu getur ekki leikið leiki sína á heimavelli.
Stuðningsmennirnir 60 voru flestir með hníf á sér samkvæmt lögreglunni í Hamburg en aðrir voru með kylfur og önnur barefli.
Stuðningsmennirnir voru setti í klefa og látnir dúsa þar yfir nótt en var að lokum sleppt úr haldi.
Öllum var þó meinað að fara á leik liðana sem fram fór í gær. Ekki er vitað hvað aðilarnir ætluðu sér að gera með vopnin.