Manchester United er að hefja viðræður við tvo lykilmenn um nýja samninga, um er að ræða Kobbie Mainoo og Amad Diallo.
Sky Sports segir frá þessu en báðir þessir leikmenn hafa verið í stóru hlutverki undanfarið.
Mainoo braut sér leið inn í byrjunarliðið á síðustu leiktíð og hefur síðan þá verið í algjöru lykilhlutverki.
Diallo hefur byrjað flesta leiki á þessu tímabili og vill United halda í þá báða.
Mainoo ólst upp hjá United en Diallo kom frá Atalanta fyrir nokkrum árum á tæpar 40 milljónir punda og virðist vera að finna taktinn.