Tottenham hefur ákveðið að virkja ákvæði í samningi Heung-Min Son til að koma í veg fyrir að kappinn geti farið frítt næsta sumar.
Samningur Son átti að renna út næsta sumar en Spurs ætlar að virkja klásúluna hjá fyrirliðanum.
„Við höfum ekkert rætt saman, ég er bara einbeittur á þetta tímabil,“ segir Son.
„Á mínum aldri er hver sekúnda eins og mark. Við erum í mörgum keppnum, ég er bara einbeittur á tímabilið.“
„Ég vil bara ná að vinna bikar, allir hjá félaginu eiga það skilið.“
„Maður veit aldrei hvað gerist í framtíðinni, ég mun gefa allt fyrir þetta félag. Þetta eru að verða komin tíu ár.“