Einn lést í alvarlegu umferðarslysi á Skagavegi, norðan við Skagaströnd við Fossá á þriðja tímanum í dag. Bifreið lenti utan vegar og ofan í ánni. Ökumaður bifreiðarinnar lést en farþegi hennar var fluttur með sjúkrabifreið á Sjúkrahúsið á Akureyri til frekari aðhlynningar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi vestra. Rannsóknarnefnd samgönguslysa kom á vettvang en rannsókn slyssins er í höndum rannsóknardeildar lögreglustjórans á Norðurlandi vestra.
Embættið kemur á framfæri þökkum til vegfarenda sem veittu aðstoð á slysstað sem og til embættis lögreglustjórans á Norðurlandi eystra fyrir veitta aðstoð.