Ný rannsókn frá Dove leiddi í ljós að 48% fólks eyðir lengstum tíma í baði af öllum þeim rútínum sem teljast til fegrunar- og snyrtirútína.
Sama rannsókn leiddi einnig í ljós að níu af hverjum tíu Bretum eru með of þurra húð og 85% þeirra kenna baðferðum sínum um það.
Húðsjúkdómalæknirinn Emma Amoafo-Mensah sagði í samtali við Metro að það að vera of lengi í heitu baði eða sturtu geti gert að verkum að náttúrulegar olíur líkamans hverfi af honum. Án þeirra gufar vatn hraðar upp en það getur valdið því að húðin virðist þurr og strekkt.
Flestir fara í bað einu sinni á dag og því vaknar spurningin hvað við getum gert til að vernda húðina okkar?
Emma sagði að það þurfi að takmarka tímann sem eytt er í baði. Hún sagði að margir séu of lengi í baði en kjörtíminn sé undir tíu mínútum. Ef fólk sé lengur í baði auki það líkurnar á að húðin virðist þurr og pirruð, líkurnar á þessu séu enn meiri ef vatnið er mjög heitt og ef fólk hefur tilhneigingu til að glíma við þurra húð.
Hún ráðleggur fólki að reyna að halda baðferðum undir tíu mínútum, sérstaklega ef fólk er með þurra húð. Hún ráðleggur því einnig að nota volgt vatn í staðinn fyrir vel heitt vatn. Sápur eiga að vera mildar og forðast skal að nota áhöld til að nudda húðina. Eftir baðið er síðan gott að bera rakakrem á húðina til að loka rakann af í henni.