Dan Friedkin er að ganga frá kaupum á Everton og mun hann stýra félaginu, hann hefur áhuga á því að skipta um þjálfara samkvæmt fréttum.
Friedkin bíður nú eftir grænu ljósi frá ensku úrvalsdeildinni til að ganga frá kaupunum formlega.
Friedkin á einnig Roma á Ítalíu og hefur mikinn áhuga á því að reka knattspyrnufélög.
Ensk blöð segja að Friedkin horfi mest til þess að fá Gareth Southgate fyrrum þjálfara enska landsliðsins til að taka við liðinu.
Everton hefur farið illa af stað á þessu tímabili undir stjórn Sean Dyche sem þarf að óttast um starf sitt.