Stefán fór á skeljarnar í desember 2022 og gengu þau í það heilaga þann 23. september 2024.
Sjá einnig: Augnablikið þegar Kristín vissi að hún væri ástfangin af Stefáni
Kristín birti fallegt myndband úr brúðkaupi þeirra í gær og beindi orðum sínum að eiginmanninum.
„Þegar þú baðst mín var aldrei spurning hvert svarið yrði. Ég vissi það löngu áður. Rétt tæplega ári eftir það erum við orðin hjón,“ segir hún.
„Hjónaband er vinna, mér finnst þessi vinna skemmtileg með þér.
Ég er stolt af því alla daga að vera konan þín, mér finnst það líka bara svo gaman. Við getum látið eins og kjánar, bullað og brallað.
Erfiðu tímarnir gera okkur betri í því að vera hjón því við erum flink að vinna saman í því að finna út úr erfiðleikunum.
Ég er þakklát fyrir þig Stefán Jakobsson alla daga og allt okkar (lesist börnin okkar sem eru miklu meira en skibidi sigma rizz).
Ég hlakka svo mikið til framtíðarinnar með þér og allra ævintýranna okkar saman.“
Prófaðu að endurhlaða síðuna ef þú sérð ekki myndbandið hér að neðan.
View this post on Instagram