Steindór ræðir um málið í pistli á Vísi. Hann segir að það sé mikilvægt að átta sig á því að það sem við skoðum á samfélagsmiðlum getur haft bein áhrif á hvernig við upplifum okkur sjálf og heiminn.
„Ef við neytum stöðugt neikvæðs efnis mun það lita hugarfar okkar, skapa áhyggjur og jafnvel auka á streitu. En ef við fyllum daginn okkar með jákvæðni og innblæstri, þá sjáum við heiminn í bjartara ljósi og höfum meiri orku til að takast á við daglegar áskoranir,“ segir hann.
„Ef þú hefur einhvern tíma velt því fyrir þér af hverju sama tegund af efni birtist aftur og aftur, þá er það vegna þess að algóritminn sér til þess að sýna þér það sem þú hefur áður sýnt áhuga,“ segir Steindór og útskýrir hvernig algóritminn virkar:
„Samfélagsmiðlaalgóritmar eru hannaðir til að halda athygli okkar. Þeir fylgjast með öllu sem við „lækum“, horfum á, eða deilum og byggja á því hvað þeir birta okkur næst. Ef við eyðum miklum tíma í að skoða neikvætt efni, fréttir sem valda kvíða eða áhyggjum, munu samfélagsmiðlarnir sýna okkur meira af slíku. En góðu fréttirnar eru þær að við getum tekið stjórn á þessu ferli. Við getum meðvitað ákveðið hvað við viljum sjá og hvaða áhrif það hefur á huga okkar.“
Steindór segir að það sé hægt að stjórna því hvað algóritminn sýnir þér og þar af leiðandi stjórna því hvernig þú hugsar. „Með því að taka meðvitaða ákvörðun um að gefa uppbyggilegu og jákvæðu efni meiri tíma, geturðu breytt því hvað samfélagsmiðlarnir sýna þér,“ segir hann og útlistar þrjú skref til að breyta algóritmanum þínum.
„1. Veldu að fylgjast með jákvæðu efni – Gerðu meðvitaða ákvörðun um að fylgja aðgöngum sem veita þér hvatningu, gleði og jákvæða orku.
2. Líttu framhjá neikvæðu efni – Ef þú sérð neikvæðar fréttir eða efni sem dregur þig niður, slepptu því að smella á það og passa að eyða ekki tíma í það.
3. Gefðu jákvæðu efni meiri athygli – Taktu frá tíma daglega til að horfa, lesa eða „lækka“ jákvætt og uppbyggjandi efni. algóritminn mun fljótlega fylgja þessu mynstri og sýna þér meira af því sem þú vilt.“
Steindór segir algóritma vera ansi líkan hug okkar. „Ef við einbeitum okkur að jákvæðni, uppbyggjandi hugmyndum og hvatningu, þá munum við sjá meira af því – bæði í „feed-inu“ okkar á samfélagsmiðlum og í raunveruleikanum. Það sem við vökvum, það vex – og þetta gildir jafnt um samskipti okkar á netinu og í daglegu lífi. Með því að velja hvað við gefum athygli getum við smám saman breytt því hvernig við sjáum heiminn og hvernig við mætum honum,“ segir hann.
Steindór hvetur fólk til að taka stjórn á algóritmanum á samfélagsmiðlum eins og það myndi taka stjórn á eigin hugsunum.
„Veldu meðvitað það sem þú vilt sjá og fylltu daginn þinn með jákvæðni og innblæstri. Það er fyrsta skrefið í að breyta samfélagsmiðlareynslu þinni – og jafnframt skrefið í að breyta hvernig þú mætir lífinu.“
Pistilinn má lesa í heild sinni hér.