Natalie komst í heimsfréttirnar árið 2009 þegar hún varð fyrsta kona sögunnar til að eignast áttbura sem allir lifðu af. Fyrir átti Suleman sex börn.
Natalie, sem áður hét Nadya, er 49 ára gömul og eðli málsins samkvæmt hefur hún haft í mörg horn að líta á undanförnum árum.
Í færslu á Instagram-síðu sinni sagði hún að 23 ára sonur hennar hafi eignast litla stúlku með unnustu sinni fyrir skemmstu. Þakkaði hún syni sínum og tengdadóttur fyrir þessa „einstöku gjöf“ og um væri að ræða kærkomna viðbót við fjölskylduna.
Natalie var áberandi í sjónvarpi árin eftir að áttburarnir komu í heiminn en hún hefur að mestu haldið sig til hlés síðustu ár. Hún birti þó myndir af áttburunum fyrr á þessu ári þegar þeir fögnuðu 15 ára afmæli sínu.