Laugadraumurinn fer nú fram meðal nemenda á Framhaldsskólanum á Laugum. Um er að ræða keppni sem hefur verið haldin árlega í mörg ár.
„Keppnin hefur alltaf staðið í tíu daga á einni önn, en í ár var fyrirkomulaginu breytt og stendur keppnin í eina viku á báðum önnum og verða stigin lögð saman í lok vorannar. Bikar er í verðlaun fyrir sigurliðið og liðið ræður hvað hann gerir við hann,“ segir Bella Eir Thorbergsdóttir 18 ára nemandi við skólann.
„Laugadraumurinn virkar þannig að skemmtistjórn Framhaldsskólans á Laugum býr til áskoranir fyrir nemendur sem þeir geta framkvæmt til að safna stigum fyrir sitt lið, liðin eru vistaskipt. Álfasteinn og miðhæð Tröllasteins erum saman í liði, efsti og neðsti Tröllasteinn saman og svo Fjall og utanvist. Ég er sjálf í liði Fjalls og utanvistar og erum við strax komin með þó nokkur stig, keppnin byrjar vel og eru allar vistirnar byrjaðar að raða inn stigum. Á hverri mynd eða myndbandi þarf að vera hlutur sem sannar að þetta sé ekki gömul mynd, í ár er hluturinn tannbursti,“ segir Bella Eir.
Keppnin hófst í dag, mánudaginn 23. september og endar á miðnætti sunnudaginn 29. September. Mismunandi er hversu mörg stig fást fyrir hverja áskorun, því erfiðari, því fleiri stig. Fyrir að kyssa skallann á einhverjum fást 30 stig og fyrir að fá að vinna einhvers staðar í einn dag þar sem nemandi hefur ekki unnið áður fást 100 stig.
„Að vera á Laugum er upplifun sem allir ættu að fá að upplifa, það eru bara 82 nemendur á heimavist hérna á þessari önn, þannig allir þekkjast sem er mjög næs. Við erum bara eins og ein stór fjölskylda. Við erum dugleg að safna okkur í bíla og fara til Akureyrar eða Húsavíkur að versla eða borða. Það eru íþróttir niðri í íþróttahúsi eftir skóla alla virka dögum og er oftast góð mæting. Nemendafélag framhaldsskólans er dugleg að halda viðburði eins og íþróttakeppnir, bíókvöld og sundlaugarpartý.
Skólinn byrjar klukkan 9:15 alla daga og er búinn 15:30 alla daga nema á föstudögum er hann búinn 14:30. Kennararnir og starfsfólkið er mjög næs og alltaf til í að hjálpa með nám og drama ef það kemur upp. Ég mæli mjög mikið með Framhaldsskólanum á Laugum, þetta er upplifun sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.“