Brotin beindust gegn Gisele Pelicot og hefur eiginmaður hennar, Dominique, þegar játað að hafa byrlað henni ólyfjan ítrekað og fengið ókunnuga karlmenn til að nauðga henni. Mönnunum kynntist hann á netinu og stóðu brotin yfir um margra ára skeið, eða frá 2011 til 2020.
Daily Mail hefur fylgst vel með réttarhöldunum og segir miðillinn frá því að Joan hafi verið yfirheyrður af ákæruvaldinu í dómsal í morgun.
Kwai fæddist í Gvæjana á norðurströnd Suður-Ameríku en fluttist til Frakklands á unglingsárunum. Hann kom fyrst heim til Gisele og Dominique í nóvember 2019, eða sama dag og dóttir hans kom í heiminn. Þar tók hann þátt í brotum gegn Gisele. Hann gerði það sama einu sinni enn og hugðist koma í þriðja sinn, en Dominique hætti við á síðustu stundu.
Saksóknarar sýndu Kwai meðal annars myndir af Gisele þar sem hún lá meðvitundarlaus í rúminu heima hjá sér. Eftir að hafa séð myndirnar viðurkenndi hann að um nauðgun hefði verið að ræða og Gisele hafi vissulega verið án meðvitundar þegar brotin áttu sér stað.
Í umfjöllun Daily Mail kemur fram að aðeins 14 karlar hafi viðurkennt brot sín og játað að um nauðganir hafi verið að ræða. Aðrir hafa neitað ásökununum eða sakað hjónin um að hafa „platað“ þá til þátttöku.
Búist er við því að niðurstaða fáist í réttarhöldunum í desember næstkomandi.